25. febrúar til 1.mars 2013
Það mættu allir hressir og kátir á mánudegi, eða það höldum við (Rebekka og Margrét Rún) því við vorum ekki í skólanum því við vorum veikar. Þess vegna verður ekki sagt neitt um mánudaginn. Nema að það var Þrautakvöld á mánudagskvöldinu, þar voru lið að keppa í hinum ýmsu þrautum. T.d var kókosbollu át og appelsínu leikur. Krakkarnir gerðu líka Harlem Shake myndband sem er hægt er að sjá á Fésbókinni/Flettismettinu á Nemendaráðssíðunni, þar eru líka myndir frá kvöldinu. Liðið sem vann hét Glasses því allir í því liði eru með gleraugu. Nöfnin á hinum liðunum voru ekki síðri t.d. 1000 kallarnir og krónan, Erkifjendur Gumma, Dúddarnir og Minions.
Á þriðjudaginn þá var fjör í skólanum því þá var fyrsti valdagur vikunnar, þá var íþróttaval. Þá vorum við í glímu. Ólafur glímukappi kom og spjallaði við okkur um glímumót erlendis og að maður getur unnið pening og þá voru allir allt í einu rosa áhugasamir.
Í íslensku erum við að skrifa dagbækur um starfskynninguna. Við erum líka í Gísla sögu Súrssonar, við erum alveg að klára hana.
Við erum líka í Þjóðfélagsfræði og erum að læra um hverjir ráða.
Við horfðum á mynd í ensku í seinustu viku og erum að skrifa einstaklingslega „film review“ um myndina: A lift to the scaffold.
Danskan er alltaf jafn skemmtileg því við fórum í dönsku leiki í dönsku á föstudaginn, hina dagana vorum við auðvitað stillt og prúð að vinna í bókunum.
Það er mögnuð körfubolta vika í íþróttum. Það er alltaf líf of fjör í íþróttum því allir hlaupa um eins og asnar.
Í stærðfæði þá fórum við í algebrupróf. Þar sem allir skitu upp á bak nema einn, en við fengum að taka það aftur í dag og þá gekk það betur.
Við fórum í náttúrufræði próf í þessari viku, það gekk ágætlega.
Við erum að skrifa handritið fyrir árshátíðina í leiklist og það gengur bara þrusu vel.
Í söngvali erum við að æfa fyrir árshátíðina sem verður algjört dúndur!
Margrét R.




