Í dag, á degi íslenskrar tungu bauð Leikskólinn á Laugalandi nemendum úr 1. og 2. bekk Laugalandsskóla í heimsókn. Fluttu allir nemendur úr leik- og grunnskóla sín atriði, svo sem ljóðalestur, söng og rapp. Var þetta hin besta skemmtun. Í lokin fengu allir að leika sér saman og nutu grunnskólabörnin þess ekki síst að fá að rifja upp „gamla“ leikskólatakta.
- Almennt
- Starfsmenn
- Nemendur
- Fréttir
- Annað






