Skólastarfið fer vel af stað.
Ágætu lesendur, Skólastarfið fer vel af stað hjá okkur nú í haust. Allir nemendur eru vel stemmdir og kennslan að komast í sínar föstu skorður. Fyrstu bekkingar eru að standa sig eins og hetjur, þeir eru óðfluga að skólast og eru glaðir og kátir eins og sést á myndunum sem fylgja með.
Það er heldur ekki amalegt að vera búin að fá nýjan dúk á fótboltavöllinn, enda er hann mikið notaður.
Við erum líka að setja nýjar myndir af bekkjunum inn á heimasíðuna.










