Þann 26. maí fór 1. – 4. bekkur í hina árlegu
vorferð.
Lagt var af stað frá Laugalandi og keyrt í austurátt. Fyrsta stopp var
Ásólfsskáli þar sem systkinin Kata og Einar Viðar tóku á móti okkur ásamt
Védísi sem er dóttir Einars. Þau tóku höfðinglega á móti okkur og við byrjuðum
á að fá að skoða fjósið þar sem m.a. var nýborinn kálfur. Það vakti mikla lukku
meðal nemenda. Því næst gengum við með leiðsögn þeirra inn fallegt gil sem er
við bæinn. Við stoppuðum í gilinu og krakkarnir fengu aðeins að leika sér og
njóta náttúrunnar. Eftir það fengum við að skoða bílasafnið á bænum en pabbi
Kötu og Einars hefur mikinn áhuga á bílum og að gera upp eldri bíla. Hann er
kominn með þó nokkurt safn af traktorum og bílum sem krakkarnir fengu að skoða
og setjast upp í. Vakti það mikla kátínu. Síðast en ekki síst fengum við að sjá
hvolpana á bænum sem voru nýlega farnir að opna augun.
Frá Ásólfsskála lá leiðin á Skógasafn þar sem við fengum leiðsögn í gegnum
safnið ásamt því að skoða gömlu bæina fyrir utan og samgöngusafnið.
Eftir vel heppnaðan dag var haldið aftur heim á leið þar sem skólabílarnir biðu
eftir okkur.
Dásamlegur dagur í alla staði.
- Almennt
- Starfsmenn
- Nemendur
- Fréttir
- Annað




