Vikan byrjaði að venju á mánudegi. Þann dag unnum við í áætlun í öllum fögum. Á þriðjudag var próf í ensku hjá 8.- og 9. bekk og 9. bekkur fór svo í próf í dönsku á miðvikudag. Þann dag fóru allir í val eftir hádegi og áttu skemmtilega tíma þar. Við höfum unnið svolítið í samfélagsfræðiverkefninu okkar sem er alveg ágætt. Á miðvikudag fóru allir í val eftir hádegi.Á miðvikudagskvöld var haustball í Þykkvabæ frá kl. 19:00-22:00 og var það geðveikt!
Á föstudag kepptumst við við að klára áætlunina okkar og fengum að horfa á mynd úr þáttaröðinni Human Planet.




