Skólaslit Laugalandsskóla fóru fram föstudaginn 23. maí.
Fyrir skólaslitin gafst gestum kostur á að skoða sýningu á verkum nemenda.
Skólastjórinn fór í sinni ræðu yfir starf vetrarins og þakkaði nemendum, starfsfólki og foreldum / forráðamönnum samstarfið. Margréti Sigurjónsdóttur sem nú lætur af störfum eftir 7 ára starf, voru þökkuð vel unnin störf.
Sigrún Birna nemendaráðsformaður flutti ræðu og nemendur úr tónlistavali skólans fluttu tónlistaratriði.
Nemendur fengu afhent vitnisburðablöð frá sínum umsjónarkennara.
9 nemendur útskrifuðust úr 10. bekk og voru þeim færðar rósir af nemendum 1. og 2. bekkjar í kveðjuskyni. Útskriftarnemendur afhentu svo öllu starfsfólki skólans blóm og þökkuðu fyrir sig.
Að lokum var boðið uppá kaffi og ís.







