Föstudaginn 14. nóvember sl. var nemendum í 1. og 2. bekk boðið í heimsókn í leikskólann í tilefni dags íslenskrar tungu. Vel var tekið á móti þeim og áttu allir notalega stund saman. Leikskólabörnin fluttu m.a. ljóð og fluttu kynningu um Jónas Hallgrímsson. Grunnskólanemendur sungu frumsamið lag við ljóð eftir Þórarinn Eldjárn, Naflafugl og sýndu dans með. Auk þess sungu nemendur saman nokkur lög.






