Diskótek fyrir 1.- 6.bekk var haldið í dag þriðjudag 3.des. upp í Miðgarði. Farið var í leiki sem nemendur í nemendarráði stjórnuðu af mikilli leikni og lipurð. Einnig var dansað af innlifun, farið í limbókeppni og útsláttarleik svo að eitthvað sé nefnt. Eitt er víst að mikið fjör var hjá nemendum eins og sjá má af myndunum hér fyrir neðan.









