Þriðjudaginn 30. janúar var sameiginleg Listahátíð unglingastigs Helluskóla, Hvolsskóla og Laugalandsskóla haldin á Laugalandi. Nemendur höfðu valið sér tvær stöðvar fyrirfram, en margt spennandi var í boði, svo sem snyrtifræði, spilavist, spuni, vatnslitun, tónlist og bókamerkisföndur. Í lok hátíðarinnar var öllum boðið upp á kaffi í matsal skólans þar sem hver skóli kom fram með sitt skemmtiatriði. Hátíðin þótti hafa tekist með eindæmum vel og fóru allir glaðir heim.






