Miðvikudaginn 19. desember höldum við okkar hefðbundnu litlu jól frá kl. 10:00-13:00.
Þá bjóðum við öllum að koma og sjá þau leikrit, söngva og annað sem við höfum verið að æfa.
Að venju aka skólabílarnir nemendum til og frá skóla.
Kl. 10:10-11:00 verða nemendur í stofum sínum með umsjónarkennurum og skiptast á jólakortum.
Kl. 11:10-12:10 mæta foreldrar og aðstandendur því þá hefst jóla- og skemmtidagsskrá nemenda.
Kl. 12:20-13:00 verður dansað í kringum jólatréð og fleira.




