Föstudaginn 18. desember voru litlu jólin haldin í Laugalandsskóla. Nemendur byrjuðu á því að hitta umsjónarkennara sinn í skólastofunni þar sem allir áttu saman notalega jólastund.
Eftir það mættu foreldrar og aðrir aðstandendur í hús til að horfa á vandaða jóladagsskrá í boði nemenda. Að lokum var dansað í kringum jólatré við söng og undirleik krakkanna í tónlistarvali.
Fór þetta allt saman mjög vel fram og fóru allir sáttir og glaðir í jólafrí.










