Síðastliðin föstudag var ákveðið að brjóta upp hefðbundið skólastarf með því að hafa svokallaðan Rugludag. Það voru ansi ruglaðir nemendur og kennarar sem mættu til starfa á föstudagsmorgun. Fólk klæddist fötum sem það alla jafna gerir ekki og sýndu hegðun sem í alla staði þykir svolítið óvanaleg.
Fyrstu tveir tímarnir voru samkvæmt stundaskrá en svo tók mikið rugl við. Kennarar drógu miða um hvaða bekkjum þeir ættu að kenna og hvaða fög. Það er óhætt að segja að ekkert var eins og það átti að vera. Meir að segja mötuneytistarfsmenn virtust hafa dottið á höfðið þar sem grjónagrauturinn var grænn.
Þetta var skemmtilegur dagur og vonandi að allir hafi skemmt sér vel, eins og sjá má af myndunum.














