Í dag hófust Harry Potter þemadagar í skólanum þar sem nemendur „búa“ á fjórum vistum; Gryffindor, Hufflepuff, Ravenclaw og Slytherin. Fyrsti þemadagurinn fer vel af stað. Allir nemendur eru komnir inn á sínar vistir og eru byrjaðir að útbúa þær.
Nemendur fara líka á hinar ýmsu stöðvar, svo sem á Galdrastöðina hjá Thelmu og Töfrasprotastöðina hjá Eyrúnu (professor Sprout) þar sem allir búa til sinn eigin töfrasprota.












