Við höfum verið dugleg að nýta okkur útivistarsvæðið sem verið er að byggja upp við skólann. Nú eru komnir tveir pallar og mikill sandur sem gaman er að leika sér í. Þar eru byggðir kastalar, vegir, fjöll og hvað annað sem ímyndunaraflið leyfir. Í morgun voru nemendur úr 1., 3. og 5. bekk saman þar sem þeir fengu tækifæri til að kynnast betur í gegnum leikinn. Eins og sjá má á eftirfarandi myndum var þetta skemmtileg stund fyrir alla.
- Almennt
- Starfsmenn
- Nemendur
- Fréttir
- Annað








